24 stunda sólstöðu- og áheitaganga 22.-23. júní um þjóðgarðinn Snæfellsjökul
Ný útfærsla er í ár á sólstöðugöngu um þjóðgarðinn Snæfellsjökull. Gengið verður í slóð verndarans Bárðar Snæfellsáss og safnað áheitum í þágu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar sem einnig vakir yfir fólki á svæðinu, m.a. yfir þeim sem þessa dagana sækja lífsbjörgina í sjó undir Jökli. Gangan hefst í Dritvík þar sem Bárður tók land og endar 24 tímum síðar í Tröðinni á Hellissandi.
Kort af gönguleið á snæfellsnesi
Gangan verður sannkallaður menningarviðburður því heimamenn munu troða upp með fróðleik og ýmsa skemmtan nánast alla leiðina. Náttúruundrin, sagan og dulúð næturinnar verður vissulega nálæg eins og björgunarsveitin Lífsbjörg sem mun tryggja öryggi göngumanna. Veitingstaðir og ferðaþjónar á svæðinu munu líka leggja sitt af mörkum með góðri næringu og sjálfboðavinnu.
Mæting laugardag 22. júní, kl. 09:30 við Hótel Hellissand og brottför þaðan með rútu kl. 10. Gangan hefst kl. 12 frá Dritvík.
Þátttökugjald 25.500 kr.
Innifalið: Rútufar innan svæðisins, leiðsögn, öryggisgæsla, veitingar á 5 áningarstöðum, öryggisbúnaður á jökli, fótanudd af fagfólki, aðgangur að Lýsuhólslaug, áletraður Bárðarbolur og viðurkenningarskjal. Að auki til 30 fyrstu til að skrá sig: 15% afsláttarkort Intersport (gildir út árið)..
Það eru góðfúsleg tilmæli til þátttakenda að þeir afli áheita sem gætu numið allt að öðru þátttökugjaldi. Annars eru frjáls framlög.
Áheit leggist inn á banakreikning Björgunarsveitarinnar Lífsbjörg í Snæfellsbæ
Hafnargötu 1, 360 Rifi Snæfellsbæ. Kt 660107-0450 Bankar. 0190-26-6601
Frekari upplýsingar má nálgast hér http://gowest.is/jonsmessuganga