Hættu að hanga!
UMSB stendur fyrir göngu á Þyril í Hvalfirði 31. maí
Laugardaginn 31. maí, kl. 14.00 verður gengið á fjallið Þyril í Hvalfirði. Þyrill er fjall UMSB árið 2008 í verkefni UMFÍ fjölskyldan á fjallið. Fjallið er 388 m.y.s. og er auðvelt uppgöngu. Gangan tekur um 3-4 klst. Mæting fyrir ofan við tanka Olíudreifingar í Litlasandsdal (fyrir ofan gömlu hvalstöðina). Fararstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir Bjarteyjarsandi. Benda má á að upplýsingar um næstu göngur UMSB í sumar er að finna á www.umsb.is