Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Á næstu dögum munu aðilar frá Héraðasamböndunum um allt land arka upp á fjöll til að ná í póstkassa og gestabækur sem eru þar uppi. Dregnir verða út heppnir þátttakendur sem gengið hafa á eitthvert þeirra fjalla sem eru með í verkefninu Fjölskyldan á fjallið og ritað hafa nafn sitt í gestabók. Hér að neðan eru þau fjöll sem eru með í verkefninu Fjölskyldan á fjallið 2010 tilgreind. Nánari upplýsingar um gönguleiðir upp á fjöllin er að finna undir göngukort og fjölskyldan á fjallið.
UMSK - Ungmennasamband Kjalarnesþings
Úlfarsfell
UMSB - Ungmennasamband Borgarfjarðar
Þyrill
Varmalækjarmúli
HSH - Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
Hreggnasi
Eyrarfjall
UDN - Ungmennasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga
Tungustapi í Sælingsdal
Kollar við botn Hvammsfjarðar
HSB- Héraðssamband Bolungarvíkur
Ekkjuskarð
HSV – Héraðssamband Vestfirðinga
Kaldbakur við Dýrafjörð
Sauratindar við Ísafjarðardjúp
USVH - Ungmennasamband V-Húnvetninga
Þrælsfell
USAH – Ungmennasamband Austur-Húnvetninga (USAH)
Spákonufellshöfði
UMSS - Ungmennasamband Skagafjarðar
Mælifellshnjúkur
UMSE - Ungmennasamband Eyjafjarðar
Bögvistaðafjall
UFA - Ungmennafélag Akureyrar
Þingmannavegur yfir Vaðlaheiði
HSÞ - Héraðssamband Þingeyinga
Hverfjall í Mývatnssveit
Óttar í Þistilfirði
UÍA - Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands
Svartfell, Borgarfirði eystri
USÚ - Ungmennasambandið Úlfljótur
Ketillaugarfjall
USVS - Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu
Hjörleifshöfði
Reynisfjall
HHF – Héraðssamband Hrafnaflóki
Geirseyrarmúli
HSK - Héraðssambandið Skarphéðinn
Miðfell
Bjórfell
UMFG Ungmennafélag Grindavíkur
Þórbjörn